flugfréttir
Boeing 747-8 eða A380 kemur til greina fyrir Royal Air Maroc
Boeing 747-400 vél Royal Air Maroc
Royal Air Maroc mun á næstunni óska eftir tilboði í stóra breiðþotu til að leysa af hólmi síðustu júmbó-þotu félagsins sem áætlað er að taka úr umferð á næsta ári.
Nýja júmbó-þota Boeing, 747-8 Intercontinental og risaþotan Airbus A380 koma báðar til greina en vélin myndi
einnig verða notuð í pýlagrímaflug og einnig mun hún verða notuð til að fljúga marakósku konungsfjölskyldunni milli staða.
Breiðþotur Royal Air Maroc samanstanda í dag af fimm Boeing 767 vélum en fimm Dreamliner-vélar munu leysa þær af
en sú fyrsta verður afhent í desember.
Þá mun Royal Air Maroc einnig óska eftir tilboði í minni farþegaþotur sem munu koma í stað Boeing 737-800 og 737-700
en þær vélar sem koma til greina verða Boeing 737 MAX og Airbus A320neo.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.