flugfréttir

Emirates til þriggja nýrra A380 áfangastaða á einum degi

27. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:44

Emirates mun hefja flug til San Francisco, Houston og Mílanó með A380 vélunum samdægurs

Það eru ekki mörg flugfélög í heiminum sem geta boðið upp á þrjár nýjar risaþotuflugleiðir með A380 á sama deginu en ef það er eitthvað flugfélag sem getur það þá er það Emirates.

Emirates mun í næstu viku hefja A380-flug til San Francisco, Milanó og Houston samdægurs en með því mun Emirates fljúga risaþotum sínum til 33 áfangastaða í heiminum allt frá Auckland á Nýja-Sjálandi í austri og til Los Angeles í Ameríku í vestri á heimskortinu.

A380 floti Emirates telur 1/3 af öllu risaþotum sem Airbus hefur framleitt en félagið er komið í dag með 55 risaþotur og enn á eftir að afhenda 85 eintök til viðbótar.

Þrjár A380 vélar Emirates

"Að hefja flug til þriggja áfangastaða með A380 sama daginn er ekki lítið verk en það þarf að gera hnitmiðaða áætlun, skipuleggja það vel og margar deildir þurfa að stilla saman strengi sína til að láta það verða að veruleika", segir Hubert Frach hjá Emirates.

Emirates hefur tekið við 11 nýjum Airbus A380 vélum á þessu ári og hafið flug til 9 nýrra áfangastaða með vélunum og þar á meðal Glasgow, Kuwait City, Bombay, Frankfurt, Manila, Teheran og Vín.

32 milljónir manna hafa í dag flogið með A380 vélum Emirates og margir af þeim flogið oftar en einu sinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga