flugfréttir

Verð á þotueldsneyti heldur áfram að lækka - Fargjöld standa enn í stað

28. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 10:18

Farþegar ganga um borð í flugvél á ónefndum flugvelli

Síðastliðna mánuði hefur heimsmarkaðsverð á eldsneyti og þ.á.m. á þotueldsneyti lækkað umtalsvert en hvers vegna hefur lækkunin ekki skilað sér til flugfarþega í lægri fargjöldum?

Gerd Billen, jafnréttis- og neytendaráðherra Þýskalands, hvetur flugfélög í heiminum til að lækka fargjöld í samræmi við þá lækkun sem hefur orðið á eldsneyti í heiminum.

"Flugfélögin hafa í mörg ár sagt að hækkun á eldsneytisverð sé ástæða fyrir hærri fargjöldum. Ef þotueldsneytið er að lækka svona mikið þá ættu neytendur að njóta góðs af þeirri lækkun líka", sagði Billen í viðtali við Reuters

Olíuverð hefur lækkað um meira en 20% frá því í júní í sumar en fargjöld hafa ekki lækkað á móti. Flugfélög í Evrópu hafa m.a. sagt að lækkunin hafi takmörkuð áhrif á reksturinn vegna veiks gengis evrunnar gagnvart bandaríkjadollara.

Langt er síðan að verð á þotueldsneyti hefur verið eins lágt og
það er í dag

Einn sérfræðingur í markaðsmálum segir að þar sem hörð samkeppni hefur verið í fluginu séu farþegar nú þegar að fá besta mögulega verðið hverju sinni og sé hörð samkeppni að valda lækkun á fargjöldum en ekki lækkandi eldsneytisverð.

Þurfa ekki að lækka fargjöld til að selja flugsæti

Fjölmörg flugfélög hafa komið virkilega vel undan þriðja ársfjórðungi þessa árs rekstrarlega séð og hafa mörg skilað hagnaði frá júlí til september en það er þó ekki lækkun á eldsneyti að kenna.

Flugfélögin hafa mest verið að skila hagnaði vegna gróða á aukagjöldum sem farþegar greiða fyrir auka handfarangurspláss, gjöld til að fá að fara fyrstur um borð og fleiri viðbótargjöld vegna þjónustu sem boðið er upp á en spáð er því að flugfélög í heiminum eigi eftir að skila inn 70% betri afkomu í ár m.a.v. árið 2013.

Helsta ástæðan fyrir því að farþegar eru ekki að njóta góðs af lægra eldsneytisverði er sú að flugfélögin þurfa ekki að lækka verð á fargjöldum til að selja flugmiða og eftirspurning er mjög mikil sem endurspeglast í góðri sætanýtingu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga