flugfréttir

Olíuflugleið SAS frá Stavanger til Houston strax komin út í plús

- 500.000 króna farmiði fram og til baka - Lengsta flug með Boeing 737

28. nóvember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 22:53

SAS hóf flug frá Stavanger til Houston þann 20. ágúst

Nýja olíuflugleið Scandinavian Airlines (SAS), frá Stavanger í Noregi til Houston í Texas, virðist ganga vel en tveir og hálfur mánuður er síðan að félagið hóf flug á milli þessara áfangastaða með langdrægri Boeing 737-700 vél.

Nú hafa 2.895 farþegar nýtt sér beint flug milli Stavanger og Houston en ódýrasta fargjaldið er ekki undir 240.000 krónum aðra leiðina og kostar miðinn fram og til baka um 500 þúsund krónur.

SAS getur státað sig af því að bjóða upp á lengstu flugleið í heimi sem flogin er með Boeing 737 en flugleiðin er meira en 8.000 kílómetra löng og tekur flugið um 11 klukkustundir og eru um borð 44 rúmgóð fyrsta farrýmissæti í vélinni sem hægt er að breyta í liggjandi bása.

"Yfirleitt tekur um eitt til tvö ár til að sjá hvort að flugleið til nýs áfangastaðar sé arðbær eða ekki en í þessu tilfelli er flugleiðin komin út í hagnaði á aðeins 2 mánuðum", segir Tormod Sandstø hjá SAS.

SAS ákvað að tengja saman Noreg og Texas vegna viðskiptatengsla þar á milli er snýr að olíuiðnaði en fjöldi Norðmanna sem starfa í olíuiðnaðinum eru í viðskiptum við sambærileg fyrirtæki í Texas.

Olíukaupsýslumenn hafa hingað til þurft að fljúga með KLM gegnum Amsterdam eða taka British Airways til London Heathrow og skipt þar um vél til Houston eða Dallas.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga