flugfréttir

MH370: Kenning um að Rússar hafi rænt vélinni og flogið henni til Kazakhstan

- Jeff Wise segir að Rússar hefi þá þekkingu og reynslu sem til þarf

14. desember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 13:44

Nyrðri hringboginn sem var reiknaður út nær frá Taílandi til Kazakhstan á meðan syðri nær niður til Suður-Indlandshafs

Ný kenning hefur komið upp á yfirborðið varðandi flug MH370 þar sem talið er að hið dularfulla hvarf hafi verið þaulskipulagt flugrán á vegum Rússa sem hafi rænt vélinni til Kazakhstan.

Í frétt ibtimes.co.in er greint frá rithöfundinum bandaríska Jeff Wise, sem einnig er meðlimur í sjálfstæða rannsóknarhópnum Independent Group, sem segir að kenningin um að vélinni hafi verið flogið til Kazakhstan sé ekki ný af nálinni og höfðu malasísk stjórnvöld beðið yfirvöld í Kazakhstan um leyfi til að leita að vélinni í landinu skömmu eftir að hún hvarf.

Þegar Inmarsat tilkynnti að gervihnattarfyrirtækið hefði móttekið merki frá malasísku vélinni og leitin hófst í Suður-Indlandshafi beindist athyglin frá Kazakhstan og nyrðri hringboganum en stjórnvöld þar í landi svöruðu aldrei yfirvöldum í Malaysíu.

Wise segir að það eina sem Rússar hafa þurft að gera til að láta dæmið ganga upp væri að "falsa" upplýsingar frá gervitungli til að beina athygli heimsins frá sínu ráðabruggi - "Ef þeir hefðu farið út í eins stjarnfræðilega flóknar leyniaðgerðir þá hafa Rússar gert slíkt áður og hafa reynsluna sem til þarf", segir Wise.

Rithöfundurinn Jeff Wise hefur lengi grunað að hvarf flugs
MH370 tengist flugráni

"Kazakhstan skortir þá tækniþekkingu sem til þarf til að skipuleggja hið fullkomna flugráð en það sama er ekki hægt að segja um Rússa - Rússland er eina landið sem sker sig úr vestrænum löndum en býr samt yfir þeirri þekkingu og er jafn framarlega í flugvélaiðnaðinum og Bandaríkin".

Wise segist hafa rætt um þessa kenningu sína við fjölmarga aðila, samstarfsmenn, vini og kunningja og allir spyrja hann til baka "hver væri tilgangurinn?".

"Svarið er: "Ég veit það ekki" - en tilefnið skiptir ekki máli. Ef upplýsingarnar frá gervitunglinu er tilbúningur og vélin fór ekki suður þá erum við að horfa á nyðri hringbogann sem þýðir að vélin hefði drifið til Kazakhstan", segir Wise sem telur að mestu líkurnar séu að vélinni hafi verið lent í borginni Baikonur.

Segir MH370 og MH17 tengjast viðskiptaþvingunum á Rússland

Wise segir að ef vélinni hafi verið flogið til Kazakhstan að þá beinist öll spjót að Kremlin og rússnesku ríkisstjórninni og segir hann Kazakhstana og Rússa mikla vini.

Wise tengir hvarf malasísku farþegaþotunnar við spennunna milli Úkraínumanna og Rússa á Krímskaga og segir að nokkrum vikum áður en vélin hvarf hafi Evrópa og Bandaríkjamenn hótað aðgerðum gagnvart Rússum í kjölfar innrásarinnar inn í Úkraínu.

Daginn áður en flug MH370, þann 6. mars, beitti Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, róttækum aðgerðum með því að skrifa undir viðskiptabann við Rússland.

Sergey Lavroy, utanríkissráðherra Rússlands, sagði að viðskiptabannið myndi koma í höfuðið á Bandaríkjunum eins og búmerang og daginn eftir, 7. mars, hvarf malasíska farþegaþotan.

Wise segir að það sama hafi endurtekið sig aftur þann 16. júlí þegar Barack Obama hafi undirritaði enn strangara viðskiptabann gagnvart Rússum. Í kjölfar þess hafði Vladimir Pútín, forseti Rússlands, sagt að þetta ætti eftir að verða dýrkeypt fyrir Bandaríkin en daginn eftir, þann 17. júlí, var farþegaþota frá Malaysia Airlines, flug MH17, af sömu gerð (Boeing 777) skotin niður í Úkraínu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga