flugfréttir
SAS mun hefja beint flug til Hong Kong frá Stokkhólmi
A340 vél SAS á Suvarnabhumi-flugvellinum í Bangkok
SAS (Scandinavian Airlines) ætlar að hefja aftur Asíuflug frá Stokkhólmi og hefur kynnt fyrirhugaða flugleið frá Arlanda-flugvellinum til Hong Kong.
SAS hefur ekki flogið til Asíu frá Stokkhólmi frá árinu 2009 en hingað til hafa Svíar þurft
að fara til Kaupmannahafnar til að komast með SAS til Asíu sem flýgur frá Kastrup-flugvellinum til Peking, Shanghai og Tókýó.
Alls hafa yfir 30.000 farþegar flogið óbeint á milli Stokkhólms og Hong Kong árlega frá árinu 2010 sem endurspeglar
að eftirspurn er á beinu flugi milli þessara tveggja áfangastaða.
Flug SAS frá Stokkhólmi til Hong Kong mun hefjast í september árið 2015 og verður flogið þar á milli fimm sinnum í viku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.