flugfréttir

Boeing aðstoðar flugvelli við undirbúning fyrir Boeing 777-9X

18. desember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 12:22

Tölvugerð mynd af Boeing 777X vélinni

Boeing hefur kynnt áætluð ytri mál á Boeing 777-9X vélarinnar í þeim tilgangi að flugvellir geti undirbúið sig fyrir vélina sem kemur á markaðinn árið 2020.

Flugvallarsamtökin Airports Council International (ACI) gáfu seinast út málin á vélinni í september en þá sagði Boeing að 777-9X vélin yrði 76,7 metrar á lengd sem er 20 sentimetrum lengra en upphaflega hafði verið kynnt og 2,8 metrum lengri en Boeing 777-300ER vélin.

Flugvellir þurfa að geta undirbúið sig fyrir nýjar tegundir af farþegþotum ef þær eru lengri eða stærri en aðrar vélar svo hægt sé að gera ráðstafanir varðandi flugvallarþjónustu og aðgang vélanna að landgangi en einnig hafa flugvellir þurft að fara út í framkvæmdir til að geta tekið á móti vélum á borð við A380.

Airbus A380 hefur lengsta vænghæf í heimi sem mælist 80 metrar en vænghaf Boeing 777-9X vélarinnar mun koma í 2. sætið með 71,8 metra langt vænghaf sem mun flokka Boeing 777-9X vélina með A380 sem aðeins geta athafnað sig á flugvöllum sem geta tekið á móti vélum í flokki Code F.

Boeing ætlar hinsvegar að smíða 777-9X vélina með vængenda sem hægt er að bretta upp til að minnka vænghaf vélarinnar við landgöngubrú en vandamálið verður samt ekki úr sögunni þar sem vænghafið verður aftur 71,8 metri í flugtaki sem kallar á flugbraut sem er a.m.k. 60 metrar á breidd en Code E flugvellir hafa 45 metra breiða flugbraut.

Boeing tekur hinsvegar fram að ICAO hafi samþykkt undanþágu til að leyfa Boeing 747-8 vélinni að athafna sig á Code E flugvöllum sem hefur 4 metra breiðara vænghaf en hefðbundin Boeing 747 vél.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga