flugfréttir

Norræni fjárfestingarbankinn lánar til framkvæmda Isavia á Keflavíkurflugvelli

18. desember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 14:04

Stefán Friðriksson útlánastjóri á lánasviði Norræna fjárfestingarbankans, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia og Henrik Normann, bankastjóri NIB undirrita lánasamninginn

Isavia ohf. og Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) undirrituðu í gærkvöld lánasamning að upphæð 32 milljónir evra (um 5 milljarða króna) vegna framkvæmda og endurbóta á Keflavíkurflugvelli sem miða að því að auka afköst flugvallarins.

Mikil fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll kallar á aukin afköst og er vinna þegar hafin við 5.000 fermetra stækkun flugstöðvarinnar með biðsölum og brottfararhliðum fyrir fjarstæði. Fleiri framkvæmdir eru í undirbúningi eins og fjölgun flughlaða og breytingar á innviðum flugstöðvarinnar. Áætlað er að framkvæma í afkastaaukandi verkefnum á flugvellinum fyrir um 15 milljarða króna (100 milljón evra) á árunum 2014-2016.

Norræni fjárfestingarbankinn er alþjóðleg bankastofnun í eigu átta norrænna ríkja: Danmerkur, Finnlands, Íslands, Eistlands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn annast fjármögnum verkefna á vegum opinberra aðila og einkaaðila innan og utan norrænu landanna og nýtur hæsta lánshæfismats hjá helstu matsfyrirtækjum heims, Standard & Poor’s og Moody’s.

„Farþegum á Keflavíkurflugvelli hefur fjölgað jafnt og þétt. Fyrirhugaðar fjárfestingar sem Norræni fjárfestingarbankinn fjármagnar munu að hluta koma til móts við aukna eftirspurn eftir þjónustu og auka möguleika á samkeppni flugfélaga í flugi til og frá Íslandi“, segir Henrik Normann bankastjóri.

Lán bankans til Isavia er veitt án sérstakra trygginga eða ábyrgðar frá eiganda og er til marks um tiltrú bankans á félaginu og rekstri þess.

„Miklar fjárfestingar eru nauðsynlegar á Keflavíkurflugvelli til þess að mæta síauknum kröfum um aukna afkastagetu og þjónustu. Áætlað er að gerð aðalskipulags og þróunaráætlunar fyrir flugvöllinn ljúki á næsta ári og þá skýrist betur hvaða leið verður farin til þess að mæta langtímaþörfum flugvallarins og notenda hans. Við fögnum samstarfinu við Norræna fjárfestingarbankann og teljum það fyrirtækinu til framdráttar að vera með svo öflugan bakhjarl sem lánveitanda“, segir Björn Óli Hauksson forstjóri.

Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia og Henrik Normann, bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans handsala lánasamninginn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga