flugfréttir

Greenland Express á leið til til Norður-Ameríku - Eiga von á Airbus A319 vélum

19. desember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 13:30

Svona myndi Airbus A319 líta út í litum Greenland Express

Greenland Express er á lokasprettinum með að ganga frá leigusamningi á tveimur Airbus A319 vélum og ætlar félagið að hefja flug yfir Atlantshafið með því að tengja Grænland saman við Norður-Ameríku og áfram til Danmerkur en ekkert flugfélag flýgur í dag beint milli Ameríku og Grænlands.

"Með því að taka inn nýjar og langdrægari vélar þá opnast möguleiki á því að stækka mikið okkar markaðssvæði", segir Einar Aðalsteinsson hjá Greenland Express í viðtali við Alltumflug.is en margir aðilar hafa farið fram á að koma á flugsamgöngum milli Norður-Ameríku og Grænlands.

Fokker 100 vél Greenland Express

Greenland Express er einnig að skoða aðra áfangastaði í Evrópu í samvinnu við stóra aðila sem vilja koma þessari tengingu á við Grænland sem liggur við landamæri heimsjálfanna tveggja en fyrirhugað er að fljúga til Kanada og nota Kangerlussuaq sem tengiflugvöll.

"Þjónustan sem við buðum upp á í sumar hrissti rækilega upp í fólki sem er orðið langþreytt á að hafa ekki valmöguleika þegar kemur að flugi til og frá Grænlandi", segir Einar en félagið bauð upp á mun hagstæðari verð en fólk hefur vanist hingað til.

Mikill áhugi hefur verið frá ferðaþjónustuaðilum og fyrirtækjum vestanhafs fyrir flugi frá Norður-Ameríku beint til Grænlands og er eftirspurn mikil bæði meðal viðskiptafarþega og þeirra sem vilja heimsækja landið.

Þá kemur fram að einnig er verið að skoða möguleika á að bæta Færeyjum inn í leiðarkerfið annaðhvort á næsta ári eða árið 2016.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga