flugfréttir
Nýtt flugfélag fundið til að taka við fyrstu CSeries vélinni
CS100 tilraunavél Bombardier
Kanadíski flugvélaframleiðandinn Bombardier hefur valið nýtt flugfélag til að verða það fyrsta til að taka á móti fyrsta eintakinu af CSeries farþegaþotunni í stað Malmö Aviation sem ákvað að bíða með móttöku á fyrstu vélinni.
Bombardier segir að viðskiptavinurinn sem verður sá fyrsti til að fá CSeries-vélina óski hinsvegar eftir nafnleynd
um sinn og segir talsmaður framleiðandans að það muni koma í ljós síðar.
CS100 mun koma á markaðinn á síðari hluta næsta árs en lengri útgáfan, CS300, verður afhent hálfu ári síðar.
Malmö Aviation óttaðist frekari seinkanir hjá Bombardier eftir að bilun kom upp í hreyfli við tilraunir á vélinni í maí en félagið pantaði 10 slíkar vélar í júní árið 2011, fimm af gerðinni CS100 og fimm CS300.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.