flugfréttir

UTair ætlar að leggja 40 prósent flotans árið 2015

21. desember 2014

|

Frétt skrifuð kl. 22:21

UTair ætlar að skera niður um 40 prósent í flota félagsins

Rússneska flugfélagið UTair ætlar að leggja 40 prósent af flugflota sínum árið 2015 en með því ætlar félagið að spara sér 13 milljarða króna í rekstrarkostnað á ári.

UTair, sem hefur 123 þotur í flota sínum, ætlar að taka allar 12 Airbus A321 vélarnar úr umferð auk þess sem tólf Boeing 757 vélum veður lagt.

Þá mun félagið einnig taka úr umferð sex Boeing 737-800 af þeim níu sem félagið hefur af þeirri tegund og einnig verða tvær Boeing 767 vélar og allar fjórtán Bombardier CRJ-200LR kyrrsettar og þá ætlar félagið ekki að nota þær sex Sukhoi Superjet 100 vélar sem félagið hefur fengið.

UTair stendur því uppi með 34 Boeing-vélar sem flestar eru af gerðinni 737-500 og fimmtán ART skrúfuvélar en niðurskurðurinn er hluti af Impulse sem er ný rekstraráætlun sem félagið kynnti til sögunnar fyrr á þessu ári.

Þá stendur einnig til að fresta því að taka á móti þeim vélum sem félagið hefur pantað en UTair á m.a. von á 27 Boeing 737-800 vélum, 12 Airbus A321, sjö Boeing 737-900ER og 19 Sukhoi Superjet 100 vélum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga