flugfréttir
Vél Icelandair snéri við vegna bilunar í hreyfli eftir flugtak frá Kastrup
- Verið er að senda nýja vél frá Keflavík
Boeing 757-200 vél Icelandair í flugtak í Kaupmannahöfn
Bilun kom upp í hreyfli á farþegaþotu Icelandair skömmu eftir flugtak í dag frá Kastrup-flugvellinum í Kaupmannahöfn er vélin var á leiðinni til Keflavíkur.
Vélin fór í loftið af braut 22R en er hún var komin í 5.000 feta hæð yfir Køge Bugt kom bilun upp í hreyflinum og var ákveðið að snúa við og lenti vélin aftur á Kastrup kl. 12:44 að íslenskum tíma.
TF-ISF (Laki) á Flightradar24.com kl. 12:40 í dag
Vélin er af gerðinni Boeing 757-200 og ber skráningarnúmerið TF-ISF (Laki) en lendingin gekk giftusamlega og
var ekki um neyðarástand að ræða.
Verið er að senda nýja vél frá Keflavík til að sækja farþegana og er talið að um 5 tíma seinkun verði á fluginu til Íslands
og er áætluð brottför klukkan 20:15.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.