flugfréttir

Flug MH370 skráð sem flugslys - Ekki lengur týnd vél

- Talið að allir þeir 239 sem voru um borð hafi látist í slysinu

29. janúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 12:58

Flug MH370 er nú formlega skráð sem flugslys en í 10 mánuði hefur verið um hvarf að ræða

Stjórnvöld í Malaysíu hafa formlega uppfært stöðuna á leitinni á malasísku farþegaþotunni úr því að vera hvarf yfir í að vera flugslys og er talið að enginn hafi komist lífs af.

Yfirvöld segja að leitin haldi samt sem áður áfram en gert er ráð fyrir því að allir þeir 239 sem voru um borð séu látnir en bráðum eru 10 mánuðir frá því að vélin hvarf sporlaust á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking og hefur hingað til verið um týnda flugvél að ræða en núna er atvikið skráð sem flugslys.

Með þessari breytingu ætla malasísk stjórnvöld að hefja greiðsluferli á skaðabótum til fjölskyldna og aðstandenda fórnarlambanna en það hefur ekki verið hægt hingað til þar sem hvarfið hefur ekki verið skráð sem flugslys.

Azharuddin Abdul Rahman, yfirmaður flugmála í Malaysíu, sagði að með mikilli samúð og sorg í hjarta þá hafi yfirvöld opinberlega skráð flug MH370 sem flugslys.

Fjögur skip eru nú við leit í Suður-Indlandshafi á því svæði þar sem talið er að vélin hafi farið ofan í sjóinn þann 8. mars 2014 og er sagt að öll gögn úr gervihnöttum benda til þess að þar sé vélina að finna en ekki hefur fundist tangur né tetur af vélinni þrátt fyrir viðamestu leit sem gerð hefur verið af flugvél í sögu mannkyns.

Azharuddin Abdul Rahman sagði að brátt verði birtar niðurstöður úr öryggisrannsókn á slysinu en fram kemur að samt sem áður séu engar upplýsingar eða nein rök sem hægt er að styðjast við varðandi hvað olli slysinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga