flugfréttir

Pentagon velur Boeing 747-8 sem næstu Air Force One forsetavél

29. janúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 16:27

Tölvugerð mynd af Boeing 747-8 í litum Air Force One

Bandaríkjaforseti mun fá tvær nýjar Boeing 747-8 vélar sem verða nýju Air Force One vélarnar í stað þeirra tveggja sem bandaríska forsetaembættið notar í dag sem eru komnar til ára sinna.

Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti þetta í gær en Boeing hafði tilkynnt í fyrra að til stæði að hægja á framleiðslunni á nýju júmbó-þotunni þar sem fáar pantanir hafa borist í vélina sem átti að framlengja líftíma júmbó-þotunnar sem var fyrst smíðuð árið 1969.

"Boeing 747-8 er eina vélin sem framleidd er sem uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til forsetavélarinnar", segir Deborah James, ritari bandaríska flughersins sem hefur valið þotur frá Boeing í 50 ár til að fljúga forseta Bandaríkjanna, varaforseta og öðrum háttsettum ráðherrum Bandaríkjanna milli heimsálfa.

Boeing hefur ávallt orðið fyrir valinu þegar kemur að forsetavél frá árinu 1959 en báðar Air Force One vélarnar eru nú komnar til ára sinna og eru farnar að verða dýrar í rekstri en forseti Bandaríkjanna hefur tvær Air Force One vélar, SAM 28000 og SAM 29000 sem báðar eru af gerðinni Boeing VC-25 sem byggir á hönnun Boeing 747-200B.

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, skokkar upp stigann upp í Air Force One en hann mun þó ekki fá að njóta góðs af nýju Boeing 747-8

Val bandaríska flughersins kom mönnum ekki mikið á óvart þótt að Airbus hafi boðið forsetaembættinu upp á risaþotuna Airbus A380 en ekki er talið að Boeing muni lengja framleiðslutímann á Boeing 747-8 vélinni þrátt fyrir þessa pöntun þar sem flugfélögin eru í auknu mæli að panta tveggja hreyfla breiðþotur.

Boeing fékk enga pöntun í Boeing 747-8 vélina árið 2014 og það sama má segja um Airbus þar sem ekkert flugfélag pantaði A380 í fyrra.

Bandaríski flugherinn hefur ekki gengið enn frá pöntuninni formlega en Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur varið 218 milljörðum króna fyrir endurnýjun á Air Force One til ársins 2019 en ekki hefur verið birtar neinar áætlanir um afhendingartíma á vélunum nýju.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga