flugfréttir

Lágt verð á þotueldsneyti hefur ekki áhrif á pantanir hjá Boeing

- Eldsneytissparnaður ekki aðalástæða þess að flugfélög panti nýjar þotur

30. janúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 07:53

Jim McNerney, forstjóri Boeing

Með lækkandi verði á þotueldsneyti hafa ýmsar umræður farið af stað og þar á meðal hvort að eftirspurn eftir nýjum farþegaþotum sé að fara minnkandi í kjölfarið en sparneytnari vélar hefur verið sögð vera aðalástæða þess hversu margar þotur flugfélögin hafa pantað upp á síðkastið.

Jim McNerney, forstjóri Boeing, segir að eftirspurn eftir nýjum þotum hafi ekki minnkað þrátt fyrir mikla lækkun á þotueldsneyti sl. mánuði og hafi það ekki haft áhrif á pantanir.

"Lágt olíuverð hefur ekki breytt afstöðu flugfélaganna er kemur að endurnýjun á flugflota sem er enn mikilvægur hluti af rekstri félaganna", segir McNerney.

Flugfélögin hafa verið að keppast við að taka úr umferð eldri vélar sem eyða meira eldsneyti en þær nýju sem eru nú í smíðum en margar nýjar tegundir munu ekki koma á markaðinn fyrr en eftir nokkur ár þótt að búið sé að panta mörg eintök.

McNerney segir að pöntun í nýjar þotur fari eftir afkomu flugfélaganna en ekki olíuverði og séu flugfélögin ekki að panta vélar á borð við Dreamliner einungis því að hún sé mun sparneytnari því slík vél er einnig ódýrari í rekstri og viðhaldi, farþegavænni, þægilegri og hafi meira flugþol.

Þá tekur McNerney það fram að 20% af eftirspurninni eftir Dreamliner-vélinni sé vegna þess að hún bjóði upp á möguleika að tengja saman tvær borgir sem áður var ekki hagstætt að fljúga á milli.

Þess má geta að Air Canada ætlar sér að hefja flug milli Toronto og Delhi og Dubai með Dreamliner-vélum sem gera félaginu það kleift en með öðrum flugkosti hefði félagið ekki sé fram á að slíkt flug yrði arðbært.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga