flugfréttir
Flugstjóri hjá Delta læstist úti og komst ekki aftur inn í stjórnklefann
Aðstoðarflugmaðurinn flaug vélinni einn til Las Vegas
Flugstjóri um borð í vél Delta Air Lines læstist úti og komst ekki inn í flugstjórnarklefa á vél félagsins sem var á leið frá Minneapolis til Las Vegas.
Vélin var hálfnuð á leið til Las Vegas þegar flugstjórinn brá sér frá en er hann ætlaði inn kom bilun upp í lásnum á hurðinni
inn í klefann sem varð til þess að flugstjórinn stóð vandræðalegur fyrir utan en hann útskýrði fyrir farþegum að dyrnar stæðu
á sér og þarf af leiðandi kæmist hann ekki inn.
Aðstoðarflugmaðurinn flaug því vélinni einn og lenti henni á McCarran-flugvellinum í Las Vegas en mikil fagnaðarlæti
brutust út meðal farþega er hann lenti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.