flugfréttir

Yfir 50 sprengjuhótanir í Bandaríkjunum í janúar

30. janúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 13:42

Farþegaþota Delta Air Lines rýmd á Raleigh-Durham flugvellinum þann 17. janúar

Bandarískum flugfélögum hefur borist yfir 50 sprengjuhótanir á síðustu 12 dögum gegnum Netið eða samfélagsmiðla í kjölfar hótunar sem átti sér stað þann 17. janúar sl. er tilkynnt var um sprengju um borð farþegaþotu frá Delta sem var á leið frá Atlanta til Raleigh-Durham.

Frá þeim degi hafa yfirvöld í Bandaríkjunum borist 50 sambærilega sprengjuhótanir en talið er að í flestum tilvikum séu óprúttnir aðilar að herma eftir atvikinu sprengjuhótuninni þann 17. janúar.

Yfirvöld segja að engar þessara hótana hafa átt við nein rök að styðjast en slíkum hótunum hafi samt sem áður farið fjölgandi.

"Við rannsökum allar svona hótanir samt sem áður því þær eru kostnaðarsamar fyrir flugfélögin og valda mikilli röskun í ferðatilhögun hjá farþegum", segir talsmaður bandarísku alríkislögreglunnar (FBI).

Þá varð ein sprengjuhótun á Twitter á dögunum til þess að tvær vélar voru rýmdar á flugvellinum í Atlanta eftir að notandi skrifaði ummæli á Twitter-vef sinn um að hann hefði gleymt sprengjunni sinni um borð í annarri hvorri flugvélinni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga