flugfréttir

TF-MOM og TF-DAD nafnið á nýju Airbus A321 vélum WOW air

20. febrúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 13:08

Tölvugerð mynd af Airbus A321 vélunum í litum WOW air

Eins og fram hefur komið hefur WOW air fest kaup á tveimur Airbus A321 vélum sem munu koma til með að verða notaðar í Ameríkuflugi félagsins í vor.

Vélarnar koma nýjar frá Airbus-verksmiðjunum en upphaflega voru þær hluti af pöntun rússneska flugfélagsins UTair en félagið neyddist til að skera verulega niður í flota félagsins og hætti við pöntun í 12 Airbus A321 eintök en vélarnar tvær sem WOW air tekur hafa aldrei farið inn á rússneska grundu þótt búið var að mála þær í litum UTair.

Airbus A321 vélarnar tvær sem WOW air fær flugu sitt fyrsta tilraunaflug sl. sumar - TF-MOM var fyrst skráð sem VQ-BTT fyrir UTair Aviation og flaug hún fyrsta tilraunaflugið í júlí 2014 en TF-DAD, sem var fyrst skráð sem VQ-BMI, flaug fyrsta tilraunaflugið í ágúst 2014 og koma báðar vélarnar með CFM56-5 hreyflum.

Ætli það sé „nýja-lykt“ í vélunum?

"WOW air á hvolfi er MOM - og MOM er nafnið á starfsmannafélaginu okkar - og er pabbi ekki það mikilvægasta í lífi hjá okkur öllum? - og þannig fengum við DAD", segir Svana, upplýsingafulltrúi félagsins í samtali við Alltumflug.is

"Þetta er búið að vera mikið og langt ferli að fá vélarnar og við erum bara mjög heppinn að fá glænýjar vélar - Það hefur ekkert annað flugfélag flogið þessum vélum".

Þá er fyrsti kvenflugmaður WOW air mjög spennt fyrir að fljúga nýju vélunum - "Hún var að velta fyrir sér hvort það skildi vera svona „nýja-lykt“ í vélunum eins og maður finnur í nýjum bílum", segir Svana sem segir að það sé mikill spenningur fyrir vélunum.

TF-DAD á Finkenwerder-flugvellinum í Hamborg í ágúst 2014 skráð á tímabundna skráningu Airbus sem D-AZAQ í litum UTair







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga