flugfréttir
Sex Boeing 757 vélar drifu ekki alla leið yfir Atlantshafið í gær frá Evrópu
- Þurftu að lenda í Gander og Bangor til að taka meira eldsneyti
Allar vélarnar voru að koma frá Evrópu og voru af gerðinni Boeing 757
Sex farþegaþotur þurftu í gær að lenda óvænt til að taka eldsneyti eftir flug sitt yfir Atlantshafið vegna sterkra mótvinda í háloftunum á leið sinni til Norður-Ameríku.
Allar vélarnar voru af gerðinni Boeing 757 og voru þær að koma frá Evrópu en tvær vélar þurftu að lenda á flugvellinum
í Gander á Nýfundnalandi meðan hinar fjórar vélarnar lentu í Bangor í Maine.
Vélarnar sem lentu á Gander voru frá United Airlines, flug UA55, en sú vél var á leið frá París (GDC) til Newark og hin, sem einnig var frá United, var flug UA121, frá Barcelona til Newark.
Ljósmynd sem einn farþeginn um borð í vél United Airlines tók
við komuna til Gander
Vélarnar sem lentu í Bangor var vél US Airways, US751, frá Brussel til Philadelphia, UA63 frá Madrid til Newark, UA16 frá London Heathrow til Newark og US799, á leið frá Amsterdam til Philadelphia.
Vélarnar tóku viðbótareldsneyti og héldu að lokum áfram til sinna áfangastaða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.