flugfréttir
Reiði meðal íbúa í Phoenix eftir að FAA breytti aðflugslínum
Farþegaþota í flugtaki frá Sky Harbor flugvellinum
Íbúar í hverfi einu í miðborg Phoenix í Arizona segjast vera orðnir langþreyttir á stanslaustri umferð flugvéla eftir að aðflugs- og fráflugslínum að Sky Harbor flugvellinum var breytt sl. haust.
Einn íbúinn, Steve Dreiseszun, segir að hann geti ekki verið úti í garði og lesið sögur fyrir son sinn lengur
þar sem þoturnar sveima yfir garðinum hans á 3 mínútna fresti. - "Við töpuðum þeirri friðsæld sem fylgdi því að vera úti í garði - Þetta er ekki bara óþægindi heldur skerðing
á lífsgæðum", segir Dreiseszun
Annar íbúi segir að hann vakni stundum á nóttunni við vélarnar fara yfir en áður en aðfluginu var breytt naut hann
þess að fá góðan svefn.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) breyttu aðfluginu að Sky Harbor flugvellinum í Phoenix í september 2014
og hafa íbúar í F. Q. Story Neighborhood Historic District hverfinu staðið í ströggli við kerfið síðan þá.
Mótmælaskiltum hefur verið komið fyrir í hverfinu
Umrætt hverfi inniheldur mjög gömul hús með sögulegt gildi sem hafa gengist í gegnum endurbætur og er talið
að margir íbúar eigi eftir að setja íbúðir sínar á sölu en einn íbúinn segir að fasteignaverðið hafi nú þegar lækkað um 30% eftir að fluglínunum var breytt.
Jennifer Longdon, flutti inn í hverfið í maí 2014 en hún segir að hún hefði sleppt því og valið aðra fasteign ef hún hefði
vitað hvar var í vændum þar sem hún segist hrökkva upp á nóttunni við gríðarlegan hávaða ef flugvél flýgur yfir húsið hennar.
Flugmálayfirvöld í Phoenix hafa fengið yfir 2.700 kvartanir inn á borð til sín frá 950 heimilum frá því aðfluginu var breytt
þann 18. september en allt árið 2013 barst stofnuninni 220 kvartanir frá 43 heimilum.
FAA segir að með nýju flugleiðunum til og frá vellinum sé verið að gefa flugfélögum kleift á því að ná fram sparnaði og
draga úr seinkunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.