flugfréttir

Þingmenn vilja svarta kassa sem skjóta sér frá borði og fljóta á sjó

- Kostir og gallar fylgja öllum tillögum

28. febrúar 2015

|

Frétt skrifuð kl. 19:56

Ekki eru allir sammála því hvaða leið sé best til að rekja för farþegaþotna betur en gert er í dag

Bandarískir þingmenn vilja fara fram á að svörtum kössum, sem skjóta sér sjálfkrafa frá borði og fljóta á sjó, verði komið fyrir í þeim flugvélum sem fljúga yfir sjó í þeim tilgangi að auðveldara verði að finna flak vélar ef upp kemur neyðarástand.

"Við erum mjög mikið eftir á er kemur að þeirri tækni sem völ er á í dag", segir John Duncan, þingmaður repúblíkana í Tennessee.

Aðilar innan flugmálastofnanna hafa samt sem áður sagt að sjálfskjótanlegur og fljótandi flugriti sé ekki nauðsynlegur ef byrjað verður að rekja farþegaþotur mun nákvæmara en gert er í dag.

Kevin Hiatt, hjá IATA, segir að hægt er að virkja betur þann búnað sem þegar er til staðar í farþegaþotum með því að streyma upplýsingum í rauntíma úr vélunum gegnum gervihnött sem væri mun hentugri leið og bendir hann á að það sé engin ein lausn sem henti öllum flugfélögum.

Málið var tekið fyrir í bandaríska þinginu á dögunum þegar næstum ár er liðið frá því að malasíska faþegaþotan, flug MH370, hvarf á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking en enn hefur ekkert til vélarinnar spurst.

"Það er algjörlega óásættanlegt að það sé ekki hægt að staðsetja eða rekja för flugvéla - Það er á okkar ábyrgð að tryggja að engin farþegaþota sé að fljúga án þess að hafa fullnægjandi búnað um borð til að rekja för hennar", sagði John Mica, þingmaður repúblíkana í Flórída.

Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) ætlar sér að fá svör frá þeim 191 aðildarflugfélagi sem eru í samtökunum varðandi þá tillögu að skylda flugvélar frá og með nóvember 2016 til að gefa upp nákvæma staðsetningu á 15 mínútna fresti en bandarískir þingmenn eru mjög óþreyjufullir og vilja að lausn finnist á vandamálinu sem fyrst.

Sífellt fleiri þingmenn hallast að því að best sé að skyldar flugfélög til að koma fyrir svörtum kössum um borð í vélar sem fljóta á yfirborði sjávar þar sem hægt yrði að ná þeim mun fyrr í stað þess að leita að þeim á sjávarbotni en Airbus hefur komið fram með þá hugmynd og stendur til að setja slíka svarta kassa í A350 og A380 vélarnar auk þeirra Airbus A320 sem fljúga yfir sjó.

"Það þarf að hafa í huga að allar þessar hugmyndir hafa sína kosti og galla sem þarf að taka með inn í reikninginn", segir Mark Smith hjá NTSB.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga