flugfréttir

Ryanair stóð fyrir getraun með engum vinningslíkum

- Allir valmöguleikarnir gáfu rangt svar

1. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 14:57

Darren Coyle er ekki sáttur eftir að hafa tekið þátt í getraun með engum vinningslíkum

Farþegi einn sem flaug með Ryanair á dögunum hefur sent lágfargjaldafélaginu írska kvörtunarbréf eftir að hann tók þátt í getraun á vefsíðu Ryanair og komst að allir svarmöguleikarnir þrír gáfu rangt svar.

Ryanair bauð farþegum að taka þátt í leiknum fyrir 717 krónur og með því að svara einni laufléttri spurningu gátu farþegar átt von á því að fá flugið endurgreitt sem þeir höfðu bókað en Coyle flaug með félaginu til Alicante.

Ryanair tók fram að dregið væri vikulega og ákvað Darren Coyle að freista gæfunnar en Ryanair spurði farþega í leiknum hversu margar flugvélar félagið mun koma til með að hafa í flotanum árið 2024 eftir seinustu flugvélakaup.

Svarmöguleikarnir voru 380 vélar, 420 eða 450 vélar. Coyle komst að því að litlu hefði breytt hverju hann hefði svarað því eftir að hann leitaði að svarinu á Google kom í ljós að Ryanair mun hafa 520 vélar í flotanum árið 2024 og voru vinningsmöguleikarnir því engir.

Coyle fannst hann hafa verið svikinn með því að greiða 700 krónur fyrir leik sem er ekki möguleiki að vinna og hafði hann samband við Ryanair en þar á bæ urðu menn skömmustulegir og viðurkenndu að mistök hefði átt sér stað og endugreiddu þeir Coyle 700 krónurnar í snatri.

Talsmaður félagsins segir að verið sé að rannsaka hvað olli þessum mistökum en Coyle spyr sig að því hversu margir höfðu eytt sömu upphæð án þess að eiga möguleika á því að vinna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga