flugfréttir

Þrjár þjóðir gera tilraun með nýja aðferð til að rekja farþegaþotur

- Sjá staðsetningu flugvéla á flugi yfir sjó á 15 mínútna fresti

1. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 17:21

Boeing 777-200ER vél Malaysia Airlines (9M-MRN) í flugtaki í Kuala Lumpur þann 7. febrúar sl.

Þrjú lönd, sem koma að leitinni að malasísku farþegaþotunni, ætla sér að gera tilraunir með nýjar aðferðir til að rekja farþegaþotur en löndin eru Ástralía, Malasía og Indónesía.

Öll eru löndin eyríki að öllu leyti og að hluta til þar sem flugfélög landanna flúga oftast yfir stór hafsvæði á leið sinni til áfangastaða og þar með talið í innalandsflugi fyrir Malasíu og Indónesíu.

Gerðar verða prófanir með kerfi sem rekur farþegaþotur á 15 mínútna fresti sem er aukning frá rakningu á 30 til 45 mínútna fresti en tæknin er þegar til staðar um borð í mörgum breiðþotum í langflugi.

Kerfið mun geta rakið staðsetningu á flugvélum yfir sjó á allt að 5 mínútna fresti og oftar ef vélin fer út af áætlaðri flugleið en búnaðurinn sem verður prófaður er frá fyrirtækinu Airservices sem hefur yfir að ráða kerfi sem nær yfir 11% af yfirborði jarðar með gervihnattartækni.

Warren Truss, samgönguráðherra Ástralíu, segir að ekki sé öruggt að kerfið hefði endilega komið í veg fyrir að malasíska farþegaþotan hefði horfið.

Angus Houston, yfirmaður leitarinnar að MH370, tekur í sama streng og Truss og segir að um enga töfralausn sé að ræða en vel hefði mátt rekja malasísku farþegaþotuna með þessum hætti.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga