flugfréttir

Ekkert lát verður á fjölgun farþega um Keflavíkurflugvöll sumarið 2015

- 19 flugfélög munu fljúga um KEF í sumar til 73 áfangastaða

1. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 22:45

Talið er að 4,5 milljónir farþega muni fara um Keflavíkurflugvöll á þessu ári

Ekkert lát verður á farþegaaukningu á Keflavíkurflugvelli í sumar. Alls munu 19 flugfélög halda uppi ferðum þaðan til 73 áfangastaða um háannatímann. Sætaframboð í sumaráætlun eykst um 13% frá fyrra ári en áætlað er að heildarfjöldi farþega á árinu verði 4,5 milljónir sem er 16% aukning frá því í fyrra. Árleg farþegaaukning nokkur undanfarin ár hefur verið á bilinu 15 – 20%.

Nokkrir nýir áfangastaðir bætast í áætlun flugfélaganna í sumar. Portland í Bandaríkjunum og Birmingham í Bretlandi eru nýir áfangastaðir Icelandair og áætlar félagið að fljúga allt árið til Birmingham. WOW Air mun einnig hefja flug til Bandaríkjanna í vor og hyggst fljúga til Boston og Baltimore allt árið. Dublin, Tenerife og Amsterdam einnig nýir heilsársáfangastaðir hjá WOW Air og félagið mun hefja flug til Rómar og Billund í sumar.

EasyJet flýgur til 8 áfangastaða allt árið og bandaríska flugfélagið Delta lengir flugtímabil sitt um 6 vikur frá því á fyrra ári. Þá bætir spánska félagið Vueling við flugi til Rómar og Lufthansa flýgur til Frankfurt og Munchen.

Ráðgert að afgreiða allt að 25 farþegaflug um háannatíma að morgni og síðdegis flesta daga vikunnar en allmargar flugvélar eru jafnframt einnig afgreiddar um hádegisbil og miðnætti.

Þessi flugfélög munu fljúga um KEF í sumar:

Air Berlin
Air Greenland
Atlantic Airways
Austrian Airlines
Delta Air Lines
Edelweiss Air
easyJet
Germanwings
Icelandair
Lufthansa
Niki
Norwegian Air Shuttle
Primera Air
Scandinavian Airlines (SAS)
Thomas Cook
Transavia France
Vueling
WOW air



Mjög skemmtileg loftmynd af Keflavíkurflugvelli







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga