flugfréttir

Fyrsta kínverska rafmagnsflugvélin kemur á markaðinn á þessu ári

- RX1E mun geta flogið í 90 mínútur með fullhlaðnar rafhlöður

2. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 07:57

RX1E mun koma á markaðinn fyrir lok ársins

Fyrsta rafknúna flugvélin sem framleidd er í Kína mun koma á markaðinn á þessu ári en vélin nefnist RX1E og er smíðuð af Liaoning General Aviation Academy.

RX1E hefur fengið flughæfnisvottun frá kínverskum flugmálayfirvöldum og mun vélin fara brátt í fjöldaframleiðslu og hefur framleiðandinn þegar fengið 18 pantanir í vélina og verða fyrstu eintökin afhent viðskiptavinum fyrir lok ársins.

RX1E er tveggja manna flugvél sem nær 150 kílómetra hraða á klukkustund og getur vélin flogið í eina og hálfa klukkstund á fullri hleðslu og mun vélin kosta um 21 milljón króna.

Rafflugvélin hefur hlotið mikla athygli þar sem viðhald hennar verður mjög hagkvæmt og einfalt, rekstrarkostnaður mjög lágur og einnig þykir vélin mjög örugg.

Vélin mun henta vel í mörgum tilgangi og þar á meðal til löggæslu og eftirlits, til flugkennslu, til skemmtunar og til einkanota.

Framleiðendur vélarinnar sjá fram á mikla eftirspurn eftir flugvélum sem munu ganga fyrir rafmagni og segja hönnuðir hennar að Kína verður leiðandi á sviði framleiðslu á rafmagnsflugvélum á næstunni.

Um 406 krónur mun kosta að reka rafflugvélina á klukkstund og 100 krónur að hlaða rafhlöðurnar og verður hún því afar hagstæð og auðveld í notkun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga