flugfréttir

Eitthvað heyrist mölbrotna skyndilega í upptöku úr hljóðrita

- Möguleiki að sprunga hafi komið í rúðu á stjórnklefanum

25. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 14:08

Talið er möguleiki á því að sprunga hafi komið upp í rúðu í stjórnklefanum

Ónafngreindur aðili sem tengist rannsókninni á Germanwings-flugslysinu og kýs að halda nafnleynd segir að svo virðist sem að sprunga hafi komið í rúðu á flugstjórnarklefanum.

Komið var með hljóðritann úr vélinni til Frakklands snemma í morgun og fyrir hádegi var strax hafist handa við að ná hljóðupptökum úr honum en þrátt fyrir hversu illa farinn hann er þá segja flugslysasérfræðingar að mjög sjaldgæft sé að þeir hafi verið það illa farnir að ekki hafi tekist að ná neinum gögnum úr þeim.

"Það var eitthvað hátt brothljóð sem heyrist - Eitthvað sem mölbrotnar - Þetta er snöggur hvellur", segir aðilinn sem hefur greint frá því hvaða flugslysasérfræðingarnir hafa náð að heyra í morgun en þetta er haft eftir frétt þýska netmiðilsins diepresse.com

Sami aðili tekur einnig fram að heyra má hvar annar flugmaðurinn virkjar sjálfstýringuna en eftir það heyrist ekkert meira í upptökunni sem er um hálf klukkustund á lengd.

Þessi frásögn rennir stoðum undir þær kenningar sem margir sérfræðingar hafa komið með um að gluggarnir í stjórnklefanum gætu hafa brotnað eða sprunga myndast í rúðu með þeim afleiðingum að flugmennirnir misstu meðvitund ef loftþrýstingurinn féll niður vegna þessa.

Aðaláherslan er að finna hinn svarta kassann sem er flugritinn en einnig verður gerð tilraun til að finna hluti úr hreyflum vélarinnar.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga