flugfréttir

Aðstoðarflugmaðurinn var 28 ára og hét Andreas Guenter Lubitz

- Grandaði vélinni vísvitandi eftir að hafa læst sig inni í stjórnklefanum

26. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 12:55

Aðstoðarflugmaðurinn sem talin er hafa grandað vélinni var 28 ára og hét Andreas Guenter Lubitz

Brice Robin, saksóknari í Marseille, sagði á blaðamannafundi sem lauk nú rétt fyrir skömmu að komið hefur í ljós að aðstoðarflugmaður Germanwings-vélarinnar hafi vísvitandi stýrt vélinni niður af ásetningi og hafi hann verið á lífi undir það síðasta þar til vélinn flaug inn í fjallshlíð í Frönsku Ölpunum.

Robin vitnar í afrit af hljóðupptökunni þar sem heyrist er flugstjórinn bankar á dyrnar til að komast aftur inn en ekki heyrist neitt hljóð í aðstoðarflugmanninum síðustu 10 mínúturnar og virðist sem að andardráttur hans hafi verið eðlilegur og er talið að hann hafi grandað vélinni viljandi.

Robin saksóknari segir að aðstoðarflugmaðurinn hafi verið þýskur, Andreas Guenter Lubitz að nafni, og var hann 28 ára, búsettur í Montabaur í Þýskalandi

Ekki er talið að hann hafi tengst neinsskonar hryðjuverkastarfsemi en augljóst þykir að hann hafi læst stjórnklefanum til að geta fengið tækifæri á að granda vélinni eftir að flugstjórinn fór á salernið.

Þá hafa þýskir fjölmiðlar sagt að flugstjórinn hafi heitið "Patrick S" en ekki er enn vitað hvert full eftirnafn hans var.

Gekk til liðs við flugklúbb sem unglingur og byrjaði í sviffluginu

Andreas Guenter Lubitz hafði flogið hjá Lufthansa frá því í september árið 2013 og lærði hann að fljúga í flugskóla í Bremen og tók atvinnuflugnámið í flugskóla Lufthansa.

Gabriele Wieland, bæjarstjórinn í Montabaur, segir að Andreas hafi búið heim hjá foreldrum sínum en hafi einnig leigt íbúð í Dusseldorf og var hann meðlimur í flugklúbbnum LSC Westerwald.

"Hann gekk til liðs við flugklúbbinn okkar sem unglingur til að uppfylla drauminn til að verða flugmaður. Hann byrjaði að læra svifflug og endaði sem aðstoðarflugmaður á Airbus A320", segir í tilkynningu frá klúbbnum.

Nágrannar Andreas segja að hann hafi verið mjög vinalegur og hafi hann ellt drauminn um að verða flugmaður af miklum þrótti og hélt hann sér iðulega í formi með því að skokka.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga