flugfréttir
Flugsafn í Arizona fær Dreamliner-tilraunavél að gjöf frá Boeing
ZA002 var önnur Dreamliner-vélin sem Boeing notaði við flugprófanir
Boeing hefur gefið Pima Air & Space Museum flugsafninu eina af þeim Dreamliner-vélum sem voru notaðar við flugprófanir en vélinni var flogið í gær frá Palmdale í Kaliforníu til safnsins sem er staðsett í Tucson í Arizona.
Tilraunavélin, sem ber skráninguna ZA002, var flogið í tilraunaflugi yfir 960 klukkustundir í 300 flugferðum sem var hluti af vottunarferlinu fyrir Boeing 787-8 vélarnar en vélin flaug fyrst þann 22. desember árið 2009.
Ári síðar kom um eldur um borð er vélin var á flugi og neyddust tilraunaflugmennirnir til að lenda í Texas en atvikið átti eftir að setja strik í reikninginn og seinkaði Dreamliner-áætluninni í kjölfarið.
Þetta er önnur Dreamliner-vélin sem Boeing gefur á safn en í fyrra fékk Museum of Flight í Seattle þriðju Dreamliner-vélina að gjöf sem var ZA003.
Tilraunavélar eru yfirleitt ekki seldar til viðskiptavina og er ekki óalgengt að þær fljúga ekki meira eftir að flugprófunum líkur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.