flugfréttir

Sundurrifin læknisvottorð fundust á heimili Lubitz

- Talið að hann hafi verið að hylma yfir veikindum sínum

27. mars 2015

|

Frétt skrifuð kl. 15:11

Talið er að aðstoðarflugmaðurinn hafi ekki verið í andlegu ástandi til þess að fljúga

Saksóknari í Dusseldorf hefur greint frá því að við húsleit á heimili aðstoðarflugmannsins Andreas Lubitz, sem talinn er hafa grandað Germanwings-vélinni, hafi m.a. fundist skjöl frá lækni ásamt læknissvottorði sem búið var að tæta í sundur og er áætlað að hann hafi verið að fela veikindi sín fyrir yfirmönnum sínum.

Saksóknari tekur fram að ekki hafi fundist sjálfsmorðsskilaboð eða neitt sem bendi til þess að hann hafi aðhyllst trúarbrögðum en samkvæmt sundurrifnu læknisvottorðunum bera til kynna að honum hafi verið ráðlagt að lækni að fljúga ekki eftir skoðun.

"Vottorðin segja okkur það að hann var ekki í ástandi til að fljúga og auk þess að þau voru sundurtætt endurspeglar að hann var ekki með heilsu til að mæta til starfa", segir saksóknari en flugmönnum hjá Lufthansa ber skylda til að láta vita ef þeir treysta sér ekki til þess að fljúga.

Saksóknari segir að einhverja daga mun taka að fara nánar yfir gögnin en viðamikil húsleit fór fram í íbúð aðstoðarflugmannsins.

Spítali í Dusseldorf segir að Andreas Lubitz hafi verið sjúklingur hjá þeim sl. 2 mánuði þar sem hann hafi mætt í greiningu og reglubundið mat en ekki er farið nánar tiltekið í hverju sú meðferð var fólgin.

Þá hefur spítalinn sagt að fréttir í fjölmiðlum um að hann hafi leitað til þeirra vegna þunglyndis ekki réttar og hafi það því verið af öðrum ástæðum.

Alastair Rosenschein, fyrrverandi flugstjóri hjá British Airways, segir að ekki sé nægilega strangt tekið á eftirliti með geðheilsu flugmanna í fluginu.

Lufthansa segir að búið sé að setja á sérstaka nefnd sem mun sjá um að öryggisskoðun er snýr að flugmönnum og einnig stendur til að taka upp þá starfsreglu um að ávallt skulu vera tveir flugmenn í stjónklefanum og verði það gert í samráði við flugmálayfirvöld í Þýskalandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga