flugfréttir
Myndarlegur aðflugsbogi að KEF náði upp í Borgarfjörð
Hann náði alla leið að Borgarfirði aðflugsboginn að KEF klukkan 16:10 í dag
Það var myndarlegur aðflugsboginn sem nokkrar faþegaþotur mynduðu seinnpartinn í dag er sex Icelandair-vélar þær komu allar saman á einu bretti í aðflugið á Keflavíkurflugvelli frá Evrópu á fimmta tímanum í dag en ein Boeing 737-800 vél frá TUIfly aðstoðaði við að mynda bogann.
Algengt er að vélarnar fari yfir Höfuðborgarsvæðið þegar braut 20 er notuð á Keflavíkurflugvelli í sunnanáttinni
og voru um sjö vélar sem komu með skömmu millibili og fóru fjórar yfir austurborgina og þar af tvær á sömu mínútunni.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem náðust af Oslóar-vélinni (TF-FIS) og 2 mínútum síðar birtist Kaupmannahafnar-vélin yfir Sundagörðum (TF-FIX) en tvær vélar sluppu framhjá ljósmyndaranum og hurfu bakvið éljaskýin.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.