flugfréttir
Tveir læknar höfðu metið Lubitz óhæfan til þess að fljúga
- Germanwings var ekki kunnugt um vottorð sem giltu fyrir marga daga
Frá Háskólasjúkrahúsinu í Dusseldorf
Tveir læknar höfðu metið aðstoðarflugmanninn Andreas Lubitz óhæfan til að fljúga með vottorðum sem voru gefin út fyrir flugið örlagaríka en þeim láðist að láta yfirmenn hans hjá Germanwings vita.
Þýska dagblaðið The Rheinische Post segir að sitthvor læknirinn hafi ráðlagt Lubitz að fljúga ekki og er greint frá því að mögulega hafi hann grandað vélinni af ótta við að missa flugmannsskírteinið vegna veikinda.
Einnig gáfu læknarnir út fleiri læknisvottorð fyrir dagana frá 16. til 29. mars sem einnig fundist á heimili hans ásamt þeim vottorðum sem var búið að rífa í sundur.
Talsmaður Germanwings segir að flugfélaginu hafi ekki verið kunnugt um að læknar höfðu metið hann vanhæfan með vottorðum og segja að það hefði átt að vera á ábyrgð Lubitz að skila þeim inn til félagsins.
Vinir Lubitz segja að allt hans líf hafi snúist um að verða atvinnuflugmaður en einn félagi hans segir að "Lubetz hefði dáið" hefði hann ekki náð prófinu í flugnáminu og á hann að hafa óttast hvað tæki við ef hann stæðist ekki læknisskoðun.
Háskólasjúkrahúsið í Dusseldorf (Universitatsklinikum Dusseldorf) segir að Lubitz hafi komið á spítalann þann 10. mars og einnig í febrúar og segir aðilar á sjúkrahúsinu að það hafi ekki tengst því þunglyndi sem Lubitz þjáðist af.
Ónafngreindir aðilar segja að Lubitz hafi farið á spítalann vegna veikinda sem voru líkamleg en ekki andleg.
Háskólasjúkrahúsið í Dusseldorf
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.