flugfréttir
Flugmenn TAP Portugal boða til 10 daga verkfalls
Airbus A319 vél TAP Portugal
SPAC, félag atvinnuflugmanna hjá TAP Portugal, hefur boðið til tíu daga verkfallsaðgerða sem munu hefjast frá og með 1. maí en verkfallið mun koma til að hafa slæmar afleiðingar á reksturinn hjá flugfélaginu portúgalska.
Gert er ráð fyrir því tap TAP Portugal á verkfallsaðgerðunum muni nema 10 milljörðum króna en félagið reynir hinsvegar allt til að koma í veg fyrir verkfallið
Taprekstur varð á rekstri félagsins ári 2014 í fyrsta sinn eftir hagnað sl. 5 ár. - "Félagið er að fljúga mun lengri flugleiðir en önnur evrópsk flugfélög þar sem við erum að fljúga frá Lissabon sem er í útjaðri Evrópu", segir Fernando Pinto, framkvæmdarstjóri TAP Portugal.
"Flugtíminn á flestum okkar flugferðum er yfir 2 klukkustundir sem er krefjandi fyrir reksturinn á hverjum degi", bætir Pinto við.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.