flugfréttir
Myndband: Flogið yfir Fjallabak og Langasjó á Super Cub
Það er fagurt umhverfið sem gefur að líta í þessu flotta myndbandi
Íslensk náttúra í allri sinni dýrð er hér í aðahlutverki í þessu stórskemmtilega myndbandi sem tekið er upp á sportmyndavéll sem fest var á Piper Super Cub vélinni TF-KAJ í Flugklúbbnum Þyt.
Flogið er meðal annars yfir Landmannalaugar, Langasjó, Skaftártungur, Skógarfoss, Mýrdalsjökul og fleiri fallega staði.
TF-KAJ var smíðuð árið 1975 og kom hún til Íslands frá Bandaríkjunum í júlí árið 1991 og kemur vélin með mjög stór dekk sem eru sérhönnuð fyrir flug í óbyggðum en vélar með slíkt dekk eru algengar í Alaska þar sem Piper Super Cub vélina er að finna.
Samtals hafa verið skráðar níu Super Cub flugvélar á Íslandi síðan 1958 en framleiðsla vélarinnar leið undir lok árið 1994 en þá hafði Piper smíðað um 10.000 eintök af vélinni.
Hér að neðan má sjá þetta skemmtilega myndband:
Fjallabak-Langisjór from Berglind og Arnar on Vimeo.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.