flugfréttir

Búið að rífa júmbó-þotu BA sem skemmdist í Suður-Afríku árið 2013

- Rakst með hægri vænginn utan í múrsteinsbyggingu rétt fyrir flugtak til LHR

25. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 19:21

Vélin var á leið frá Jóhannesarborg til London Heathrow þegar hægri vængurinn rakst utan í byggingu

Búið er að rífa niður í brotajárn júmbó-þotu í Suður-Afríku af gerðinni Boeing 747-400 frá British Airways sem skemmdist er hún rakst með vængenda utan í byggingu á O. R. Tambo flugvellinum í Jóhannesarborg í desember árið 2013.

Vélin var á leið í flugtak til London Heathrow þann 22. desember 2013 er vængurinn rakst í múrsteinsbyggingu sem stendur nálægt brautinni en flugmennirnir tóku ekki beygju á réttum stað út á brautarendann og héldu áfram hliðarbrautina sem er ekki ætluð stórum vélum.

Vélin hafði staðið á vellinum í 16 mánuði þar til byrjað var að rífa vélina niður þann 15. apríl í seinustu viku en búið var að afmá merkingarnar af vélina og fjarlægja hreyfla hennar.

Vélin, sem bar skráninguna G-BNLL, var orðin 25 ára gömul, afhent ný til British Airways 14. júní 1990 en á alþjóðarfánatímabilinu hjá flugfélaginu hét vélin "Chelsea Rose".

Hér að neðan má sjá myndir af vélinni eftir atvikið og einnig ferlið er vélin var rifin niður.













G-BNLL á flugvellinum í Toronto í maí 2003







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga