flugfréttir

All Nippon Airways ætlar að koma Skymark Airlines til bjargar

26. apríl 2015

|

Frétt skrifuð kl. 09:22

Skymark Airlines óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í janúar 2015

Japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) ætlar að koma japanska flugfélaginu Skymark Airines til bjargar með því að setja 20 milljarða króna fé inn í rekstur félagsins svo hægt sé að greiða niður skuldir þess og skrá það aftur á hlutabréfamarkaði.

Samkomulag þess efnis var undirritað sl. miðvikudag og mun japanska fjárfestingarfyrirtækið Integral Corporation einnig koma að fjárveitingunni og mun það eignast 50,1 prósenta hlut í Skymark á móti 19,9 prósenta hlut sem ANA mun eignast en afgangurinn verður í eigu hluthafa.

Skymark Airlines fór fram á gjaldþrotaskipti í janúar og hefur Airbus m.a. höfðað mál gegn félaginu sem hætti við pöntun á síðustu stundu í sex risaþotur af gerðinni Airbus A380.

Skymark var stofnað árið 1998 og ætlaði félagið upphaflega í samkeppni við ANA og Japan Airlines en félagið varð fyrir mun meiri samkeppni frá nýjum lágfargjaldafélögum sem voru stofnuð í Japan og hófu innreið sína inn á markaðinn árið 2012.

Japanska jenið varð hinsvegar það veikt gagnvart bandaríkjadalnum að leigugjöld á flugflota Skymark Airlines hækkuðu það mikið að fjárhagsstaða félagsins versnaði til muna og hætti félagið því við að taka Airbus A380 vélarnar árið 2014.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga