flugfréttir
United gerir leigusamning upp á 25 þotur af gerðinni Airbus A319
Airbus A319 vél United Airlines
United Airlines hefur gert samning við flugvélaleigufyrirtækið AerCap um leigu á 25 farþegaþotum af gerðinni Airbus A319.
Félagið mun fá ellefu vélar afhentar á næstu tveimur árum og 14 vélar verða afhentar til ársins 2022
en vélarnar munu bætast við núverandi Airbus A319 flota félagsins sem telur 55 vélar og verður þeim flogið
til áfangastaða innanlands í Bandaríkjunum, til Karíbahafsins og til Mið-Ameríku.
Airbus A319 vélarnar 25 eru í dag í notkun í flota China Southern Airlines en þær fyrstu verða afhentar frá og með næsta ári.
Eftir að vélarnar koma til Bandaríkjanna munu þær fara í yfirhalningu og verður skipt um innréttingar og farþegarými í stíl við aðrar vélar United Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.