flugfréttir

Segist fá olíudropa frá flugvélum ofan í sundlaugina sína

- Íbúar í Adelaide kvarta undan aukinni flugumferð

19. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 07:04

Flugvél fer í loftið frá Parafield-flugvellinum í Adelaide í Ástralíu

Íbúar í Salisbury, úthverfi Adelaide í Ástralíu, hafa fengið sig fullsadda af ónæði frá flugvélum sem fljúga lágt yfir íbúðarhúsum í hverfinu en einn íbúinn segir að vélarnar séu að óhreinka út sundlaugina hans og þvottinn sem konan hengir út á snúri.

Nick Markou býr undir fluglínunni að Parafield-flugvellinum í Adelaide en hann segir að olíuslettur falli frá sumum flugvélum ofan í sundlaugina sína - "Þetta lendir líka á þvottinum á snúrunum þegar konan er að hengja hann til þerris", segir Markou.

Þá segir hann að ekki sé hægt að sitja út í garði þar sem þau fái höfuðverk af hávaðanum frá vélunum sem koma yfir á allt að 30 sekúndna fresti og skorar hann á borgaryfirvöld til þess að breyta aðfluginu frá íbúðarhverfum - Það gæti hinsvegar reynst erfitt þar sem Parafield-flugvöllurinn er inn í miðri íbúðarbyggð.

Aðrir íbúar taka í sama streng og segja að aukin flugumferð er farin að verða áhyggjuefni og meðal þeirra sem kvartar yfir hávaðanum er hárskeri sem segir að lágflugið og hávaðinn fæli burtu viðskiptavini.

Chris Griffiths, forsvarsmaður Parafield-flugvallarins, segir hinsvegar að allar vélar haldi sig í lágmarksflughæð yfir íbúabyggð og þá tekur hann fram að flugvellinum hafi ekki borist nein formleg kvörtun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga