flugfréttir
Fyrsta flug Icelandair til Portland í Oregon farið í loftið frá Keflavík
Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Keflavíkurflugvallar og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair klipptu á borða til að fagna tímamótunum
Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Portland í Oregonfylki í Bandaríkjunum en fyrsta flugið fór í loftið frá Keflavíkurflugvelli kl. 17:23 í dag og er það Norðurljósavélin, "Hekla Aurora" (TF-FIU) sem er nú á leiðinni til borgarinnar.
Farþegum á fyrsta fluginu var boðið upp á sérbakaða og skreytta tertu á Keflavíkurflugvelli, eins og hefð er fyrir, og þeir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Keflavíkurflugvallar og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair klipptu á borða til að fagna tímamótunum.
Klippt á borðann fyrir brottför
Portland er 14. áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og þriðja borgin sem Icelandair flýgur til á því svæði sem gjarnan er kallað Pacific Northwest eða „kyrrahafs-norðvestrið“. Hinar borgirnar eru Seattle og Vancouver. Íbúafjöldi á Portland svæðinu nemur um 2,3 milljónum en sem ferðamannaborg er hún einkum þekkt fyrir náttúrufegurð og mikinn fjölda sjálfstæðra bjórgerðarhúsa.
Flogið verður til Portland tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum, til 20 október nk. Alls flýgur Icelandair í ár til 14 áfangastaða í Norður Ameríku og 25 í Evrópu. Auk Portland er Birmingham í Englandi nýr áfangastaður á þessu ári.
Vélin á Flightradar24.com kl. 17:29
Ekki skal hefja flug til nýs áfangastaðar nema búið sé að gæða sér á veglegri köku eins og tíðkast í fluginu
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.