flugfréttir
Airbus varar við galla í hugbúnaði í skrúfuhreyflum á Airbus A400M
Airbus A400M herflutningavélin
Airbus hefur gefið út viðvörun vegna galla í hugbúnaði í Airbus A400M herflugvélinni í kjölfar flugslyssins í Sevilla á Spáni þann 9. maí.
Airbus segir að hugbúnaðarvillan tengist hreyflum vélarinnar og er farið fram á að skoðun skuli fara fram á öllum þeim A400M vélum sem smíðaðar hafa verið.
Airbus biður viðskiptavini sína að fara yfir hugbúnað í rafstjórnunarkerfi á hverjum af þeim fjórum hreyflum sem knýja vélarnar áfram en hugbúnaðurinn er hluti af nokkrum kerfum sem vinna saman.
Erfiðleikar komu upp á sínum tíma við þróun á kerfinu sem átti sinni hlut í þeirri seinkun sem varð á framleiðslu vélanna.
Upp komst um gallann er Airbus fór yfir hugbúnaðinn eftir slysið í Sevilla en fjórir áhafnarmeðlimir létu lífið í slysinu þegar verið var að prófa Airbus A400M vél sem átti að afhendast til viðskiptavinar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.