flugfréttir

Þriðjungur starfsmanna hjá Malaysia Airlines verður sagt upp störfum

26. maí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 13:45

Floti Malaysia Airlines á flugvellinum í Kuala Lumpur

Um þriðjungur af starfsmönnum hjá Malaysia Airlines verður sagt upp en uppsagnirnar eru hluti að viðamiklum niðurskurði félagsins undir forrystu Þjóðverans Christoph Mueller sem tók við stöðu framkvæmdarstjóra félagsins þann 1. maí.

Muller stýrði áður írska flugfélaginu Aer Lingus og tókst að snúa rekstri þess á réttan kjöl en aðaláhersla í breytingu á rekstri Malaysia Airlines verður að fækka starfsmönnum, minnka flotann og mögulega verður tekið upp nýtt nafn á flugfélagið.

Christoph Mueller tók við stjórn Malaysia
Airlines þann 1. maí

Róðurinn hefur verið erfiður fyrir malasíska flugfélagið sem missti tvær farþegaþotur í fyrra, flug MH370 sem hvarf sporlaust í mars 2014 og flug MH17 sem var skotið niður í Úkraínu fjórum mánuðum síðar.

Uppsagnirnar munu fara fram með þeim hætti að öllum starfsmönnum verður sagt upp og og 2/3 verða ráðnir aftur en talið er að um 8.000 manns munu missa vinnuna sína fyrir lok ársins.

Allir starfsmenn Malaysia Airlines fá uppsagnarbréf en 2/3 fá annað bréf þar sem þeim verður boðið að endurheimta stöðuna sína hjá félaginu.

"Þetta er mjög sorgleg staða og mér datt aldrei í hug að það kæmi upp svona ástand þegar ég hóf störf hjá félaginu fyrir tveimur áratugum síðan", segir einn starfsmaður hjá Malaysia Airlines sem segist ekki sjá fram á að geta greitt af húsinu sínu og af bílalánum.

Þá mun Malaysia Airlines leggja niður stóran hluta af millilandaflugi og nær eingöngu fljúga innanlandsflug en skuldir félagsins voru þegar mjög miklar áður en hörmungarnar tvær gengu yfir í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga