flugfréttir

Boris um stækkun Heathrow: „Þetta mun aldrei gerast“

1. júlí 2015

|

Frétt skrifuð kl. 14:29

Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna, blöskrar hugmyndin um að láta stækka Heathrow

Ekki eru allir sáttir við þær niðurstöður sem sérstök flugvallarnefnd í Bretlandi kynnti í morgun þar sem stækkun Heathrow-flugvallar er talin hentugasta lausnin með þriðju flugbrautinni.

„Þetta mun aldrei gerast. Þetta er eitthvað sem hefði verið gert í Kína árið 1950“, segir Boris Johnson, borgarstjórinn í London, aðspurður um álit varðandi niðurstöðuna um stækkunina á Heathrow og telur hann að brautin yrði ekki tilbúin fyrr en árið 2030 í fyrsta lagi.

Þá segir Johnson að þriðja brautin á Heathrow myndi kalla á fjórðu flugbrautina en í niðurstöðum flugvallarnefndarinnar er algjörlega mælt gegn því að fleiri flugbrautum verði bætt við Heathrow

John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow, segir að gríðarlegur stuðningur sé fyrir þriðju flugbrautinni frá bresku viðskiptalífi og fyrirtækjum sem eiga hagsmuni að sækja og þá t.a.m. í útflutningi og öðrum iðnaði.

Ríkisstjórnin breska mun taka ákvörðun fyrir lok ársins

David Cameron, forsetisráðherra Bretlands, segir að ríkisstjórnin muni taka ákvörðun um stækkun Heathrow-flugvallar fyrir næstu jól en ákvörðunin verður erfið fyrir hann þar sem breska þingið hefur klofnað er kemur að flugvallarvanda Breta og sjálfur var Cameron á móti stækkun vallarins árið 2009.

Harriet Harman, þingmaður á breska þinginu segir að David Cameron sé í biðflugi í kringum Heathrow og Boris borgarstjóri sé ekki að gefa honum leyfi til þess að lenda og hafi tangarhald á honum.

Annar þingmaður á breska þinginu ætlar að segja af sér ef ríkisstjórnin mun samþykkja stækkun vallarins en lokaákvörðunin verður tekin af samgönguráðherranum Patrick McLoughlin.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga