flugfréttir
Phenom 300 einkaþota fórst á bílauppboði í Bretlandi
- Fjórir látnir en engann sakaði á jörðu niðri
Einkaþotan, sem var skráð í Sádí-Arabíu, var að koma frá Mílanó þegar hún fórst á Englandi
Fjórir létu lífið í gær er einkaþota af gerðinni Phenom 300 fórst er vélin gerði tilraun til að lenda á Blackbushe-flugvellinum á Englandi í gær, milli Reading og Farnborough.
Vélin, sem var skráð í Sádí-Arabíu, var að koma frá Ítalíu og hrapaði vélin á stað þar sem að bílauppboð var í gangi innan um fjölda bifreiða.
Flugstjóri vélarinnar lést auk þeirra þriggja farþega sem voru um borð en engann sakaði á bílauppboðinu en vélin kom niður skammt frá flugbrautarendanum utan flugvallarsvæðisins.
Andrew Thomas, sjónarvottur, sem var á uppboðinu og var nýbúinn að greiða fyrir bíl eftir að hafa verið með hæsta boð, varð vitni að því er vélin brotlenti - "Vélin fór með nefið beint ofan í bílana og sprakk", segir Thomas.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi rannsakar nú slysið en tildrög þess eru enn ókunn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.