flugfréttir
Asiana Airlines mun taka First Class úr flestum vélum í millilandaflugi
First Class farrými í Boeing 747-400 vél Asiana Airlines
Asiana Airlines tilkynnti í gær að félagið ætli að fjarlægja First Class farrými úr flestum vélum félagsins í millilandaflugi til og frá Suður-Kóreu.
Þetta tilkynnti Kim Soo-cheon, framkvæmdarstjóri Asiana Airlines, en félagið hefur 74 farþegaþotur í flota sínum en af þeim eru 20 vélar sem hafa bæði fyrsta farrými og viðskiptafarrými og munu vélarnar því hafa tvö farrými eftir að First Class sætin verða fjarlægð.
Asiana Airlines tapaði um 16 milljörðum króna frá júní til ágúst í sumar á MERS-veirufaraldrinum sem braust út í vor sem varð til þess að mikill samdráttur varð á ferðamönnum til Suður-Kóreu.
Airbus A380 risaþoturnar verða einu vélarnar í millilandiflugi sem félagið mun halda First Class sætum eftir sem munu hverfa úr Airbus A330 og Boeing 777-200ER vélunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.