flugfréttir

Ítarlegri hönnun á Boeing 777-9 lokið

27. ágúst 2015

|

Frétt skrifuð kl. 23:32

Boeing 777X vélin mun koma á markaðinn árið 2020

Boeing tilkynnti í dag að búið sé aðþróa og ákveða lokaútfærslur á hönnun Boeing 777-9 þotunnar sem verður fyrsta útgáfan af Boeing 777X vélinni sem mun fara í framleiðslu eftir 2 ár.

Hönnunarteymið, sem vinnur að þróun vélarinnar, sagði í yfirlýsingu í dag að um mikilvægan áfanga að ræða eftir náið samstarf með þeim flugfélögum sem hafa pantað vélina og þeim aðilum sem munu koma til með að framleiða íhluti og einingar í nýju þotuna.

„Sú rannsóknarvinna sem hefur farið fram er nauðsynleg til að samhæfa óskir flugfélaganna og flughæfni vélarinnar verkfræðilega séð„ segir í yfirlýsingu frá Boeing en framundan eru prófanir með líkan af vélinni í vindgöngum auk fjölda tilrauna með loftaflsfræðilega eiginleika.

„Það er frábært að sjá hvernig Boeing 777X hópurinn hefur unnið saman og náð að klára öll stigin á hönnunarferlinu“, segir Bob Feldmann, yfirmaður yfir Boeing 777X deildinni.

„Við munum brúa bilið aflíðandi frá Boeing 777-300ER vélinni yfir í framleiðslu á Boeing 777X vélinni. Við munum ekki bara bíða eftir að 777X vélin fer í framleiðslu“, segir Elizabeth Lund í Boeing 777 framleiðslunni.

Bob Feldmann, yfirmaður Boeing 777X deildarinnar

Boeing 777X vélin mun koma í tveimur útgáfum, Boeing 777-8 og Boeing 777-9 en þann 30. júlí var Boeing komið með pantanir í 306 eintök frá því vélin var formlega kynnt til leiks árið 2014.

„Staðan á verkefninu er nákvæmlega sú sem við höfum óskað okkur. Við erum með nýja flugvél sem er á réttum tíma og allt samkvæmt áætlun“, segir Feldmann.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga