flugfréttir

Vietnam Airlines hættir við Airbus A380

28. ágúst 2015

|

Frétt skrifuð kl. 06:45

Airbus A380 í litum Vietnam Airlines í flugleiknum Flight Simulator

Ríkisstjórn Víetnam hefur ákveðið að hætta við Airbus A380 en fjórar risaþotur voru pantaðar árið 2009 fyrir ríkisflugfélagið Vietnam Airlines.

Vietnam Airlines segir að mikill þrýstingur hafi verið á félagið til að fjármagna kaupin auk þess sem framkvæmdum miðaði mjög hægt við að breyta flugvellinum í Ho Chi Minh borg svo völlurinn gæti tekið við risaþotunni.

Flugfélagið sagði að einnig væri búið að draga úr þeim áætlunum sem félagið hafði gert til að auka umsvif sín en til stóð að fjölga vélunum í flotanum upp í 150 vélar á næstu fimm árum en núna hefur verið ákveðið að flotinn muni ekki fara yfir 120 vélar árið 2019.

Vietnam Airlines segir að efnahagsástand heimsins sé ekki nógu gott og samkeppnin í fluginu væri að harðna sem er ein af þeim ástæðum að ákveðið var að hætta við Airbus A380.

Vietnam hefur rétt undir 90 vélar í flota sínum í dag og á von á átta Boeing 787-9 vélum og tíu Airbus A350 vélum til ársins 2019.

Afpöntunin er enn eitt reiðarslagið fyrir Airbus þar sem nokkur flugfélög í Asíu hafa hætt við risaþotuna og þar á meðal japanska lágfargjaldafélagið Skymark Airlines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga