flugfréttir
Langar þig að læra að stjórna flugumferð?
- Isavia hefur opnað fyrir umsóknir um nám í flugumferðastjórn í janúar 2016
Umsóknarfrestur er til 6. september næstkomandi
Flugumferðarstjórar gegna mikilvægu hlutverki í fluginu en starfssvið þeirra hér á landi skiptist niður í flugturnsþjónustu, aðflug og svæðisþjónustu í flugstjórnarmiðstöð.
Yfir 120 flugumferðarstjórar eru starfandi á Íslandi en Isavia hefur nú opnað fyrir umsókn fyrir nám í flugumferðarstjórn sem hefst í janúar 2016.
Isavia er eini starfsvettvangur flugumferðarstjóra á Íslandi en íslenska flugstjórnarsvæðið er eitt það stærsta í heimi sem spannar alls 5,4 milljón ferkílómetra sem samsvarar 1% af yfirborði jarðar en um svæðið fer flugumferð milli þriggja heimsálfa allan sólarhringinn.
Isavia hefur opnað fyrir umsóknir um grunnnám í flugumferðarstjórn sem hefst í janúar 2016.
Flugumferðinni er að mestu stjórnað með tölvukerfi frá Tern Systems, dótturfyrirtæki Isavia, sem var stofnað árið 1987 en fyrirtækið býður upp á allan hugbúnað fyrir flugleiðsöguþjónustu.
Talið er að þörf sé á sex nýjum flugumferðarstjórum árlega næstu árin á Íslandi en 50% aukning hefur orðið á flugumferð um Keflavíkurflugvöll frá árinu 2010 og þeir farþegar sem fljúga um borð í þeim vélum sem fara um íslenska flugumferðarsvæðið eru 8 sinnum fleiri en íbúafjöldi landsins.
Hér að neðan má sjá tvö ný myndbönd - Fyrra myndbandið fjallar um nám í flugumferðarstjórn hjá Isavia og hið síðara er kynningarmyndband á vegum Isavia og Tern Systems.
Fyrir þá sem vilja kynna sér námið og sækja um þá er umsóknarfrestur til og með 6. september næstkomandi en allar upplýsingar má nálgast á:
http://www.isavia.is/flugleidsaga/langar-thig-ad-laera-ad-stjorna-flugumferd/
Myndband: Nám í flugumferðarstjórn
Myndband: Isavia and Tern Systems - in the air and on the ground
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.