flugfréttir

FAA gefur út leyfi fyrir notkun á pappírsskutlu

28. ágúst 2015

|

Frétt skrifuð kl. 13:45

Það var Peter Sachs, íbúi í Connecticut, sem sótti um formlegt leyfi fyrir notkun á pappírsskutlunni

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa gefið út leyfi fyrir notkun á nýrri tegund af dróna sem er í raun venjuleg pappírsskutla sem hægt er að fjarstýra með snjallsímanum.

Þetta er í fyrsta skipti sem FAA hefur gefið grænt ljós á pappírsskutlu en það var íbúi í Connecticut, Peter Sachs að nafni, sem lagði inn umsókn til FAA fyrir leyfi er kallast „Section 333 Excemption“ til að geta notað fjarstýrðu skutluna löglega til að taka myndir úr lofti en Sachs starfaði sem þyrfluflugmaður og flugkennari.

Pappírsskutlan kallast PowerUp 3.0 og er til sölu fyrir litlar 6.300 krónur á Netinu hjá framleiðandanum Taylor Toys en skutlan kemur með léttri miðjustöng með agnarsmáum mótor aftan á en að framanverðu er fjarskiptabúnaður og er skutlunni stjórnað með smáforriti í símanum.

PowerUp 3.0 skutlunni er stjórnað með appi

Tímaritið Forbes fjallar um málið og segir að það sé mjög mikil kaldhæðni að FAA sé að hafa fyrir því að gefa út leyfi fyrir pappírsskutlu á meðan stofnunin er á sama tíma í fullu fangi með að ná tökum á þeim fjölda atvika sem hafa komið upp vestanhafs þar sem drónum er flogið of nálægt flugvélum.

Fjarstýrða pappírsskutlan hefur 55 metra drægi, er höggþolin og er því enginn grátur og gnístan tanna þótt hún brotlendir líkt og venjulegir drónar og fjarstýrðar flugvélar.

Myndband um PowerUp 3.0 skutluna







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga