flugfréttir

Airbus ætlar að ná Boeing á Rússlandsmarkaði

30. ágúst 2015

|

Frétt skrifuð kl. 09:46

Christopher Buckley, forstjóri Airbus í Evrópu

Airbus hefur sett sér markmið um að ná að selja fleiri farþegaþotur en Boeing til Rússlands en eins og staðan er í dag eru 283 Airbus vélar í flota rússneskra flugfélaga á móti 296 vélum frá Boeing.

„Við látum Boeing standa á tánnum“, sagði Christopher Buckley, formaður Airbus í Evrópu við blaðamenn á MAKS flugsýningunni í Moskvu en hann telur að Airbus muni ná Boeing á Rússlandsmarkaðinum næsta sumar.

Aeroflot er að endurmeta ákvörðun varðandi pöntun á fjórtán Airbus A350-900 vélum og átta A350-800 vélum sem félagið hætti við árið 2014 en Aeroflot á að fá fyrstu A350 vélina árið 2018.

Vegna viðskiptahafta á Rússa hafa sum rússnesk flugfélög átt í erfiðleikum með að fjármagna þær vélar sem búið er að panta frá Airbus en Buckley segir að framleiðandinn sé tilbúinn að vera sveigjanlegur og bjóða upp á möguleika á að fresta afhendingum.

„Við erum tilbúnir í að taka hvaða áhættu sem er til að koma til móts við þá til að halda markaðshlutdeild okkar í kringum 50 prósentin“, segir Buckley.

Airbus telur að 1.300 nýjar þotur verði seldar til Rússlands og einnig til landa sem tilheyrðu áður Sovíetríkjunum á næstu 20 árum sem þýðir um 600 til 700 vélar fyrir Airbus.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga