flugfréttir
SkyGreece Airlines hættir flugrekstri tímabundið
Boeing 767-300ER vél SkyGreece Airlines
Gríska flugfélagið SkyGreece Airlines hefur hætt starfsemi sinni tímabundið í kjölfar þess að félagið hefur nokkrum sinnum neyðst til þess að fella niður flug til Ameríku.
SkyGreece segir í tilkynningu sinni að efnahagsástandið á Grikklandi hefur komið sér mjög illa fyrir félagið og hefur sala á farmiðum dregist verulega saman.
„Í kjölfar erfiðleika í rekstri hafa komið upp ýmis vandamál sem erfiðlega hefur gengið að ráða við með tilheyrandi kostnaði“, segir félagið í yfirlýsingu.
SkyGreece Airlines var stofnað árið 2012 í Aþenu af hópi grískra og kanadískra fjárfesta sem allir hafa reynslu í flugiðnaðinum en markmiðið var að stofna félag sem myndi tengja Grikki sem búsettir eru í Norður Ameríku við heimalandið sitt.
SkyGreece Airlines hefur aðeins eina Boeing 767-300ER vél í flotanum en vélin er í augnablikinu kyrrsett á flugvellinum í Toronto.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.