flugfréttir

British Airways ætlar ekki að hætta með júmbó-þoturnar

- Hagstætt fyrir félagið að nota Boeing 747 vélarnar lengur

31. ágúst 2015

|

Frétt skrifuð kl. 11:47

Boeing 747 vél British Airways

British Airways ætlar að fljúga júmbó-þotunum lengur en félagið gerði ráð fyrir en ekkert flugfélag í heiminum hefur eins margar Boeing 747 vélar í farþegaflugi eins og flugfélagið breska.

Á meðan flest flugfélög losa sig við júmbó-þoturnar í hrönnum þá ætlar British Airways að endurnýja afþreyingarkerfi og skipta út innréttingum um borð í 18 Boeing 747-400 vélum.

Singapore Airlines, sem eitt sinn hafði stærsta Boeing 747 flota heims, og Japan Airlines hafa hætt með Boeing 747 vélarnar og Air France mun hætta með júmbó-þotuna í janúar 2016 auk fjölda annarra félaga mun taka sínar 747 úr umferð á næstu árum.

Vegna þess hversu þröngt er á þingi á Heathrow-flugvelli þá segir British Airways að best sé fyrir félagið að nota júmbó-þoturnar áfram auk þess sem það er hagkvæmara þar sem verð á þotueldsneyti hefur lækkað mikið frá því sem var árið 2012.

British Airways hefur 42 júmbó-þotur í flota sínum

„Þessar vélar eiga margar hverjar mikið eftir og er mjög sniðugt að nota þær á þeim flugleiðum frá Heathrow þar sem gríðarleg eftirspurn er eftir flugsætum“, segir George Ferguson, markaðssérfræðingur í flugmálum.

British Airways hefur tekið 15 elstu júmbó-þoturnar úr umferð og sent þær í brotajárn en félagið hefur enn 42 Boeing 747 vélar eftir en helmingur þeirra voru framleiddar milli áranna 1990 og 2000 og eiga því heil 10 ár eftir í líftíma.

Af þeim 694 Boeing 747-400 vélum smíðaðar voru frá 1988 til 2009 eru aðeins 266 farþegaútgáfur eftir í notkun í heiminum en árið 2011 voru 362 vélar eftir.

Fyrir þá sem óttast það að fljúga með júmbó-þotum heyri sögunni til þá er enn nægur tími til stefnu þótt mörg flugfélög hafi tilkynnt síðasta Boeing 747 flugið á næstu mánuðum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga